Skrapp til Belgíu í dagsigurður ingi kristinsson

Hæ allir enn og aftur. Í dag var bull dagur í vinnunni. Það er búið að vera svo rólegt hjá okkur og það hélt áfram í dag. Mesta pælingin í morgun var hvorum megin í skýlinu við ættum að standa til að klóra okkur í rassgatinu. Rétt fyrir 10 ákváðum við að gefa bara skít í þetta og fara í sund. Á morgun kemur víst einn fokker í tékk. VONANDI!!! Við fórum allavega heim og chilluðum aðeins fyrst. Ég hélt áfram að reyna að fatta hvað er að þessari tölvu minni en það gekk náttúrulega ekkert.. BTW ég er að verða brjálaður á henni og ef ég hætti að mæta á msn þá er það vegna þess að tölvan fór í flugferð... Ení hú þá fórum við nú af stað upp úr hádegi í átt að sundlauginni þegar við rákumst á skilti sem var með mynd af reiðhjóli og undir því stóð BELGIE... Ok við ákváðum að hjóla þangað bara, gott veður og nægur tími. Við undirbjóum okkur undir rosa ferð og lögðum af stað... Ég er ekki að djóka en 10 mínútum seinna var stórt skilti sem á stóð BELGIE!!!!! Wattafokk þetta var aðeins nær en ég hélt. En bottom line ég hef núna komið til Belgíu JEIIIJ!!! Bjórinn er samt betri hérna meginn.. Talandi um bjór. Ég hef aldrei drukkið jafn mikið af honum og síðan ég kom hingað. Það er líka farið að sjást á manni. Iss en ég spyr bara.. hvað á maður að gera í 30 plús hita?? HA?? í alvöru hann er bara of góður. Kl. er að nálgast 20 núna og ég veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í kvöld... Best að tékka hvort ofnæmin séu nokkuð búin að drepa Gunna.. Adios camprades

Það er heitt í Hollandisigurður ingi kristinsson

Hæ hæ. Þessa dagana er einhver hitabylgja í gangi hérna. Eða bylgja og bylgja það eru 31 gráða í gangi núna og ég var að koma heim úr sundi. Ég gróf upp einhvern garð sem er svona fjölskyldu skemmti og sund garður og þar hafði ég það rosa næs og grillaði fleskið. Ég er orðinn þokkalega brúnn eða rauður á framhandleggjum en eins og fólkið í garðinum fékk að sjá hefur skrokkurinn ekki fengið sólarglampa síðan ég veit ekki hvenær. Það er nú alltaf sama að frétta hérna svosem. Í vinnunni hafa hlutirnir heldur betur hægt á sér undanfarna viku og ég er farinn að spá í hvort við verðum bara hreinlega sendir heim bráðum. Það er víst kominn einn twin otter í skoðun en hversu stór hún er veit ég ekki. Norska Wideroe átti víst líka að senda einhverjar vélar hingað í skoðun en þessar fréttir virðast breytast dag frá degi. Það er svona örlítið skipulags og samskipta vandamál í gangi hérna... Hmm jú HM er jú byrjað og ég get nú sagt það að fjörið í kringum keppnina hérna er gríðarlegt. Allir barir eru merktir HUP HOLLAND eða áfram holland og fólk skreytir bílana sína, húsin, hjólin, börnin sín og hundana og allt í appelsínugulu því það er þjóðarlitur Hollendinga. Sjálfur er ég orðinn eigandi að 3 appelsínugulum bolum og fell bara vel ínn í hópinn. Holland var rétt áðan að vinna sinn fyrsta leik á móti bosníu eða eitthvað 1-0 og ég heyri ole ole ole oooollleeee útum gluggann og bílaflaut. Svaka stuð. Ég er búinn að kynnast Norðmanni sem heitir Jens og hann býr hérna á sama hóteli og ég. Hann segist geta reddað alls konar vinnum og hinu og þessu en það kemur bara í ljós. Hann var eitthvað að tala um að það væri vinna á Möltu og var að bjóða mér með :) hver veit nema maður skelli sér ef það stenst. Planið er allavega að klára holland, koma heim og gera við Mustanginn og spæna aðeins og fara svo á nýjann stað. Allavega ég ætla að setja inn einhverjar myndir núna það er komið langt síðan. Heyri í ykkur allesammen bæjó

Vöknunsigurður ingi kristinsson

Check it out tíkur ég er kominn til að senda stera skilaboð. De la vöðvi er búinn að vera out of order undanfarið en er að vakna til lífs. Eins og japaninn frægi sagði þá segir De la vöðvi að þetta síðasta komment í gestabókinni has awakened a sleeping giant. Rykið verður dustað af adidas skónum og skokk buxurnar hristar til. Nú er tíminn kominn til að halda áfram hinu stóra verkefni að HELLA sig. Því það keyra ekki feitabollur Mustang. Það er bara ekki töff. Eitt er þó skýrt eins og reikistjarna á vetrarnótt að femoris scapularis eða lærvöðvinn fyrir fokking amatörana í grikklandi hafa styrkst ómannúðlega af öllum þessum hjólatúrum De la vöðva í Hollandi. After eight átið er búið minn kæri El búntó. Þú þarft hvorki að senda sendiráðum né saumaklúbbum undirskriftarlista því De la vöðvi mun svara kalli þínu. Ef lítll strákur frá austuríki getur hellað sig upp, unnið mr. fabilous nokkrum sinnum, leikið snilldarlega í kvikmyndum og síðast en ekki síst látið íbúa hins frábæra fylkis caaliiifoonííía kjósa sig þá getur De la vöðvi hrist á sér rassinn í Hollandi by god. For the love of triceps þá mun starfið halda áfram. I pity the fools sem láta plata sig út í Bangsimon lúkkið og ég veit ekki hvað ég var að hugsa því Bangsimon er latur aumingi sem hefur aldrei étið alvöru prótein. Ég ætla að kaupa Bangsimon dúkku bara til að buffa á kvöldin. Hann er hinn sanni satan og á skilið að fá bank. Þá getum við rætt um hversu krúttlegt það er að vera bangsalegur. Krav maga verður stúderað og getið hver fær að vera fórnarlambið... Helvíts svikarinn já það var rétt. Ég veit að afsakanir eru eins og rassgöt, everybody has one en ég ætla samt ekki að kaupa kort hérna nema ég fái á hreint hve lengi ég verð. Það verður tekið old school hellun á þetta með hlaupum og rocky látum. Ég ætla að finna mér hestvagn til að lyfta og tröppur til að hlaupa í. Armbeygjur, magaæfingar, upphíf ef ég finn stöng, hlaup og triceppius armbeygjus eru framundan. WHOOOAAAA!!!!!! Fæðubóta efni fást í Maastricht ég hef séð það. Prótein og nitroglycerin verður skipt inn á í stað toblerone. Mother og all Fucking bullshit hvað var ég að hugsa... Ég biðst velvirðingar á þessum tæknilegu örðuleikum í hugsun undanfarið. Ég veit að lífstíll okkar El búntó er sönn hvatning fyrir ykkur hin og ég hef verið að svíkja ykkur sem mentor. Præoritísarnir hafa ekki verið í orden. Ég sé ykkur öll síðar tíkurnar mínar útúr poppaður á holllensku hjúman grófþi og túlipana dufti. Ég vill tileinka þessari vöknun til Hellunar honum El búntó. Án hans væri ég ennþá meiri Bangsi. Takk kæri vin...

hollandsblogg nr6sigurður ingi kristinsson

ok ég er ógeðslega fúll. ég var búinn að skrifa rosa ritgerð sem fokkaðist svo og hvarf þegar ég ætlaði að pósta hana... Arg ég meika ekki að skrifa allt aftur en í grófum dráttum hefur þetta gerst síðan síðast... við kíktum til maastricht eitt kvöld og þegar ég kom aftur var búið að ræna reiðhjólinu mínu... Svo fórum við gunni til amsterdam síðasta sunnudag og gistum eina nótt. Það var rosa gaman. Mikið drukkið. Ég var næstum rændur og stunginn... Var búinn að skrifa rosa mikið áðan en meika ekki að segja frá öllu aftur. Ég er allavega heill hehe en alveg búinn. Við komum mjög seint heim og búnir að vera lúnir í dag. Jæja ég er að spá í að fara bara að lúlla. Heyrumst síðar

Hollands blogg nr 5sigurður ingi kristinsson

Hæ allir. Ég kíkti á þennann klúbb á lau og hann var bara ágætur. Fullt af teknótæfum og tuddum að skemmta sér. Það var svoldið fyndið að barirnir tóku ekki pening heldur þurfti maður að skipta í einhverja matador plastpeninga sem maður gat svo bíttað út fyrir drykk þarna inni. Við vorum nú ekki lengi að þarna. Komnir heim um 3. Vinnan er bara eins alltaf. Það verður víst nóg að gera á næstu dögum. Fokkerarinir eiga víst eftir að rúlla þarna inn hver á fætur öðrum og allt klikk. En við gunni erum að spá í að fara að kanna möguleikann á að skipta um staðsetningu eða að reyna að fá afnot af bíl... Þessir pínku bæjir eru voða kósý svona fyrstu 3 dagana en það væri gaman að geta farið í bíó eða eitthvað álíka villt... En það góða er að maður er ekkert að eyða á meðan allavega. Geisp geisp kl er að verða hálf níú og það er bara frekar seint fyrir okkur hér í sleepy hollow. Ég blogga eitthvað áhugaverðara seinna. Hey jú, gunni sá lítinn poka af grasi á götunni í kvöld... Það var svona hápunkturinn... Bæjó

Hollands blogg nr 4sigurður ingi kristinsson

Héðan er voða lítið að frétta svei mér þá. Veðrið er búið að vera alveg brill og ég er farinn að taka einhvern smá lit. Ég er meira að segja kominn með einhvers konar sólbruna bólur á handleggina en það hlýtur að vera bara jákvætt. Gunni er búinn að vera drullu slappur undanfarið og mætti hvorki í vinnu í dag né gær. Ég keypti handa honum anti diarea meðal í dag þannig að vonandi fer hann að lagast. Fyndið ég keypti líka verkjapillur og saman kostaði það 1.75 euro sem er um 150 kall eða eitthvað álíka fáránlegt. Hollendingar kunna sko að niðurgreiða :) Ég fékk mér myndavél og setti inn nokkrar myndir þannig að endilega kíkið á það. Hmm þetta er hálf erfitt að reyna að koma með einhverjar fréttir þegar maður er í sleepy hollow. Ég held að það sé ekki einu sinni bíó hérna. Ég verð í fríi á sunnudag og þá ætla ég nú að gera eitthvað sniðugt. Gunni vill meina að við værum innan við klst að hjóla til Belgíu. Það er spurning um að kíkja á það bara. Annars jú frétti ég í dag að það er einhver ægilegur klúbbur einmitt hér í sleepy hollow sem rúmar um 3000 manns. Svo eru herbergi sem skiptir niður klúbbnum eftir hvernig músik þú vilt djamma við. Ég hugsa að ég kíki þangað annað kvöld. Kannski eru allar dömurnar í Beek þar hver veit. Jæja ég er farinn að fá mér að éta. Skrifið endilega í comment dálkinn eða gestabókina svo ég viti að einhver er að lesa þetta :) Dank u zeer. OUT!!

hollands blogg nr 3sigurður ingi kristinsson

Jæja best að blogga meir. Við gunni gerum lítið annað en að vinna og drekka bjór og fara svo að sofa hér í Beek, Holland... En í gær varð breyting þar á og við tókum lestina til Maastricht. Þar var strax meira líf og fjör en hér í sleepy hollow. Við fórum á einhvern ægilega fínan hótel veitingastað og ég pantaði bara eitthvað... Fékk einhvers konar fisk með tómatsósu og aspas stöngum. Geggjað gott :s en eins og fínum stað sæmir er best að gefa ekki of mikið að borða. Ef við hefðum ekki drukkið svona mikinn bjór þá hefðum við pottþétt endað á mcdonalds. Við fundum einhvern pöbb sem var með geggjað band að spila fyrir eitthvað skútulið. Allavega voru allir í hvítu þarna inni. Við löbbuðum aðeins meira um bæinn og tókum svo lestina heim um 23. Við ætlum pottþétt að fara þarna aftur um helgi þegar allt er opið og svona. Ég verð að komast líka í einhverja fatabúð... Byrja samt á því að tékka á þessu þvottahúsi sem er rétt hjá. Maður er svona við það að fara að snúa brókunum við... Hmm jú ég fór út að hlaupa áðan í geðveikum skógi. Það voru litlir stígir út um allt í allar áttir og ég átti skóginn aleinn. Þetta var alveg mergjað. Fer pottþétt þangað aftur. Gunni er í sturtu núna og svo ætlum við að fara að finna eitthvað að éta. oojjjjj (það er bless á hollensku ooojjjjj)

hollands blogg nr2sigurður ingi kristinsson

Fyrsta degi lokið og það er búið að ganga fínt. Það tekur alltaf smá tíma að komast inn i hlutina en það kemur. Þetta er þokkalega stór viðhaldsstöð og það eru 3 vélar inni í skýli í tékk. Einn fokker, einn dash 8 og einn atr. Við gunni erum á fokkernum og verðum bara vonandi þar. Það eru alls konar gaurar að vinna þarna og á öllum aldri. Það var frekar heitt í skýlinu og það endaði með að ég tók Andrésinn á þetta bara... Við vorum að vinna til 8 í kvöld en ég veit ekki hvort það verður venjan eða hvað. Eftir vinnu fórum við á kebab stað og fengum okkur kebab in broot mit pommes und ketshup og spadro :) Maður er strax farinn að læra smá hollensku haha. Einn öl fylgdi svo að sjálfsögðu með eftir á á einhverjum að fjölmörgum pöbbunum. Ég blogga meira seinna því það gerðist ekkert meira í dag :)

hollands blogg nr1sigurður ingi kristinsson

Jæja ég er þá kominn til Hollands. Ég er ekki í Maastricht eins og ég hélt heldur er ég í litlum bæ sem heitir Beek. Það veit bara enginn hvað Beek er þannig að þeir kalla þetta bara Maastricht... Hentugt :) Hann er hvort eð er rétt hjá... Ferðin gekk rosa vel. Það er búið að vera 22 gráður í dag og mikill raki. Við Gunni þurftum að hlaupa svoldið á milli lesta en það reddaðist. Gunni lenti í að þurfa að borga helling í yfirvikt sem var frekar hallærislegt þegar maður hugsar til þess að vélin var bara hálf... Frekar pirrandi. Þegar við komum til Beek þá hringdum við í hótelið sem kom og pikkaði okkur upp. Þetta er meira matsölustaður en hótel því það eru bara 5 herbergi... En þetta er eldgamalt og mjög næs. Vinnan byrjar í fyrramálið en það virðist vera einhver misskilningur um að gaurinn eigi að skutla okkur. Hann reddar okkur á morgun en svo kemur bara í ljós hvernig þetta verður. Allavega þó kíktum við Gunni aðeins á þennann bæ sem 17000 manns búa í. Þetta virðist vera rosa rólegur bær. Það eru einhverjir pöbbar en fyrir utan það held ég að það sé lítið í gangi. Þetta er samt einhver fallegasti bær sem ég hef séð. Allavega svona í fyrstu sýn. Allt rosa snyrtilegt og flott. Og sá sem sagði að það væri ekki flott kvenfólk í Hollandi hlýtur að hafa verið á einhverju því þetta eru ekkert nema skutlur á eftir skutlu. Kannski eru þær svona flottar því þær virðast ( og allir) hjóla allt. Ég ætla að kaupa myndavél og setja inn einhverjar myndir hérna. Ég blogga meira seinna.

Blogg nr5sigurður ingi kristinsson

Það hefur mikið verið tuðað af öllum sem lesa þessa síðu (kannski 5 manns) að ég sé latur að blogga. En nú geri ég heiðarlega tilraun til að sanna að svo sé ekki. Hmm hvað hefur gerst síðan síðast.. Jú ég er búinn að kaupa þennann mustang þarna. Hann er kominn í gang en þarf smá dytt og datt til að fara á rúntinn. Hann verður bara svalur. Hann er skærgulur og svo ætla ég að setja svart stripe kit á hann sem mun fara yfir húdd og hliðarnar á honum. Það er bara flott. Ég fékk með honum glær fram ljós sem eiga efitr að gefa mjög kúl lúkk að framan líka. Seinna koma svo breiðari aftur dekk, lækkun og stærri mótor... Ég verð bara að bíða með það þangað til að ég kem aftur frá Hollandi. Verð þar BTW í 4-6 vikur ca í Fokker 50 skoðunum. Mér tókst að draga Gunna með mér þannig að þetta verður bara gaman. Bjallið á mig ef þið verðið stödd í Maastricht á næstu vikum... Smári gamli flugvirki ætlar kannski ða kíkja.. hann þekkir þetta inn og út og lofar að sýna okkur flottustu nuddstofurnar ;) hum já... Gimmið maður... ég er búinn að vera að svindla undanfarið. El búntó er vonsvikinn. Ég keypti meira að segja handa honum gjöf í dag því ég ætlaði að sleikja hann upp en guess what... Ég gleymdi henni á hressó þar sem ég sat og drakk kaffi. Þetta var vaxtaræktarblað frá 1983 sem ég fékk á 71 krónu í kolaportinu. Ég er viss um að hann hefði orðið ánægður. Ég verð að finna eitthvað annað handa honum því ég sagði honum að ég væri búinn að kaupa gjöf. Ég veit bara ekki hvað getur komið í stað þessa blaðs. Sorry El búntó... Svo ætlaði ég að fara í gimmið í dag en það varð ekkert úr. Ég verð að fara á morgun. Ég er búinn að ákveða að taka gimm gallann með til Hollands og finna mér gimm þar. En jæja, ég þarf að klára dempara málin í ferraríinum og svo ætlaði ég að vinna aðeins í mustanginum í dag... kl er bara orðin svoldið margt. Þessi dagur er búinn að vera mjög svona ég ætlaði en gerði ekki rassgat. Ekki gott ekki gott. En við Ási erum búnir samt að hafa það gott í chillinu í dag. PS ef einhver á mynd af manni sem heitir E"$%r B"&$%/n þá má viðkomandi endilega senda mér hana. Ég verð samt víst drepinn ef hann kemst að því að ég set inn mynd af honum en ég bara verð að sýna alheimi hvað gott prótein getur gefið af sér... Maðurinn er HELLAÐUR...

Aðalvalmynd

Auglýsing